Gamla nöldrar

4.2.2010

Tókst að tapa heilum pistli

liklega á þriðjudagskvöldið.
en það var ekkert merkilegt svosem.
núna er ég þó komin það mikið niður á jörðina eftir þetta kvöld að ég tel mig geta bloggað um málið. Í kvöld sá ég frétt á mbl.is um aðgerðir lögreglu og viðbrögð við ofsaakstri og með fylgdi myndskeið tekið úr lögreglubíl. Myndskeiðið var eftirförin á eftir Himma. Hjartað lak niður- rosalega var þetta sárt og erfitt að horfa á.
Enginn heima nema B sem var mikið upptekinn í tölvunni.

Ég skrifaði einhver orð á moggabloggið mitt. Þau standa þar enn en viðbótin er efst. Ég hringdi auðvitað í Steinar og hann heyrði að hans frú var ansi brugðið. Hann reyndi að hringja upp í mogga, ég bað hann ekkert um það. En hann náði ekki sambandi þannig að hann ók uppeftir og náði í ungan mann á planinu sem stökk inn og lagaði þetta. Myndskeiðið hvarf strax af vefnum.

En mikið er vont þegar manni er hent svona niður á jörðina.

Ég var heldur kannski ekkert í besta ástandinu til að taka þessu- alveg hundlasin með flensuskít sem ég má ekkert vera að að fá núna.

Einkaþjálfari og fitumæling á morgun.

Guð geymi Himmann minn

Skrifað 4.2.2010 kl. 22:53 af Ég sjálf

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 26
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 74
Gestir í gær: 28
Samtals flettingar: 71706
Samtals gestir: 28519
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 18:03:19
eXTReMe Tracker