Gamla nöldrar
18.1.2010
steinþegi í margar vikur og blaðra svo á mig gat
Þetta er ekki gáfulegt. Hehehe engar áhyggjur annars af mér, það þarf ekki.
Ég hef ekki setið algerlega aðgerðalaus þó ég hafi ekki mikið tjáð mig. Undir lok árs kom í ljós eitthvað heilsufarsvesen og í blóðprufum tengdum veseni eitt kom í ljós vesen nr tvö. Þannig að árið 2010 fer í eitthvað læknastúss á sjálfri mér sem er reyndar ekki algengt. Þetta er ekkert alvarlegt þannig, helst til friðs með meðulum og það er nóg, þarf að vísu að taka þessi meðul alla æfina en skítt með það bara. Nenni ekki að pirra mig á þessu. Er samt smá stressuð yfir að kannski kostar þetta handlegg (með hverju prjóna ég þá?) eða fót (það má ekki vera bensínfótur!). Steingrímur stórvinur minn hefur verið duglegur að róta í allskonar dóti svo maður þurfi nú áreiðanlega að borga slatta meira fyrir að vera til. Þetta er svona sjálfstæðisskattur.
Og hann varð til þess að taxtinn var hækkaður á stöðinni og ég fór með minn bíl eftir fimm daga umhugsun. Nú gat ég ekki gert eins og í fyrra, sleppt annarri hækkuninni og farið bara í þá seinni.
Ég er enn að prjóna og selja lopapeysur, sel þær allar beinni sölu. Mér finnst prjónafyrirtækin svína svo á prjónakonunum, taka peysurnar fyrir svo lítið og selja þær svo dýrum dómum ! Ég prjóna líka ýmislegt annað er lopapeysur, hef gert peysur úr ullarbandi sem ekki stingur en það er ekki hagkvæmt að gera, slíkt band kostar miklu meira en lopinn þannig að minna verður eftir hjá mér sjálfri.
Ég fékk í hendur diska með útför Himma og er að safna kjarki í að hlusta á þá.....finn ekki alveg hugrekkið enn til þess.
Nú ætla ég amk að gera hlé, ég á eftir að skrifa það sem ég var að hugsa um áðan. Hvernig ég lifði fyrstu dagana af í ágúst 2007....
Kem aftur, kem alltaf aftur !