Gamla nöldrar
7.4.2009
Flóttakonan
er að ná að skríða upp úr holunni. Ég er óttalega huglaus, held ég, ég bara þoli ekki rifrildi og vesen og tek ekki þátt í því. Það eru nú margar skýringar á þessum flótta núna en ég man ekki eftir svona skarpri dýfu. Bara allt í einu brotnaði ég saman, ég fann bara hvað ég varð ónýt og ég svaf í hálfan annan sólarhring.
Það hefur auðvitað verið nokkuð álag.
Þið sáuð þetta á moggablogginu og ég sá sumt af því líka þó að ég ætlaði mér það ekki. Fólk ótrúlega "gott" við mig að senda mér linka á allskonar svona...ég kíkti á færsluna hjá www.sur.blog.is nógu lengi til að sjá hvert kommentin voru að fara, sárnaði alveg rosalega og ákvað að lesa þetta ekki, alls ekki. Mér fannst þær veitast að mér og í raun Himma líka og það átti ég ofsalega erfitt með. Ég er fljót að lesa og rak augun í nokkuð sem mætti útleggjast svona : Ég er svo illgjörn að það var gott á mig að missa Himma. Önnur fullyrðing var að ég væri í voða slæmu sambandi við mann og börn...já já. Þá sýndi ég Steinari dæmið. Hann las og varð brúnaþungur, brúnaþyngri ------en svo ljómaði hann. Ég fékk knús og hann sagðist ætla að kvarta við mig beint ef honum fyndist hann þurfa þess, þyrfti ekki konur út í bæ til aðstoðar. En ég bað sérstaklega um að mér væri ekki sent svona og fólk varð við því.
Mér tókst samt ekki að verða reið við þær, ég skil ekki afhverju þetta er svona..
Æj ég ætla ekki að spá í það meira, ég bara hef ekki orkuna í það
Og þá gat ég farið að greina vandann, það er mikið álag með og í kringum hana Öldu...Ég hef barist sjálf við veikindi og verið á lyfjum sem fara illa í mig..ég hef alltaf verið óttaleg PollýAnna en nú náði ég engu taki á henni.
Það sem gladdi mig allra mest voru 2 veislur sem við skruppum í, ég og maðurinn sem á vondu konuna. Við fórum í fermingju hjá Auði sem er systir strákanna minna, það var frábært að hitta þau öll. Oftar en ekki finnst mér Heiður vera eins og systir mín, það er hvergi snefill af slæmum tilfinningum eða neinu...þau eru öll vinir okkar og mér þykir vænt um þau öll. There..I said it!
Svo fórum við Steinar í afmæli Emblu Nóttar sem er barnabarnið hans...Þær eru tvær, yndislegar skottur...þar fæst sko alvöru knús og ekkert á raðgreiðslum, bara ekta ..ég fékk tár í augun en það lagaðist.
Ég lenti samt í undarlegu atviki á leið til þeirra..við fórum í blómabúðina að ná í kort. Við hliðina á mér kom ungur maður, með svakalega sterkan rakspíra, ég fékk alveg sviða niður í...........já eða sirka þangað. Í framhaldinu slæmt astmakast sem entist bara næstum veisluna á enda. Ef ég ætla að vera svona þá verð ég að vera með púst með mér..
Það fór svo eins og ég vissi...ég var of grimm að skutla út bloggvinum og sakna þeirra sem mig vantar......
Með kveðju
Ragga -ekkibloggari
www.nino.is/keran
Litla barnabarnið í Breiðavík. Ég vaknaði í morgun með hann í huganum. Undir kvöld kom sjúkdómsgreiningin.
Þetta er vonandi réttur linkur á síðuna hans.
Afhverju er svona lagt á unga foreldra ?
Góða nótt