Gamla nöldrar

7.12.2008

Smá pása

Ég hef verið gríðarlega upptekin undanfarið, ég tók upp á gömlu atferli. Að prjóna lopapeysur og er þegar búin með tvær að því undanskildu að ég þarf að ganga frá endum og lykkja saman undir höndum.
Ég byrjaði á föstudaginn fyrir rúmri viku.
Þetta hefur gengið ágætlega.
Það er ósköp fátt í fréttum, hér er allt við það sama. Ég er nánast búin að kaupa allar jólagjafir og það fá allir eitthvað ódýrt. Bara eitthvað smávegis til að þeir sjái að við hérna munum eftir þeim.
Ég hef verið ágæt en ég finn samt að ég má ekki við miklu. Svartagallsrausið á moggablogginu fer herfilega í mig og ég hef verið að hugsa um að fækka um 2 bloggvini en hef hreinlega ekki þorað því af ótta við að allt verði brjálað. Ég er ekki í afneitun á ástandið en ég nenni ekki að velta mér upp úr óhroðanum svo vikum og mánuðum skiptir. Ég er búin að ákveða hvað ég mun kjósa næst og ég mun sýna þann vilja minn í verki í kjörklefanum næst.
Ég hef semsagt skert úthald og minna þol og ég verð að bregðast við því, ekki koma mér í niðurrífandi aðstæður. Ég þarf á öllu míni þreki að halda til að ná að halda haus.
Ég held að ég hafi þetta ekki lengra í bili.
Ég er enn að reyna að gleyma greiðsluseðlinum sem kom um daginn, það var eitt þriggja húsnæðislána sem við erum með, íslenskt lán, bara verðbæturnar frá því að við greiddum síðast eru 250.000. Sem sagt mun þetta lán hækka á 4-5 mánuðum um milljón.
Takk fyrir..!

Skrifað 7.12.2008 kl. 12:59 af Ég sjálf

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 14
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 74
Gestir í gær: 28
Samtals flettingar: 71694
Samtals gestir: 28515
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 09:14:37
eXTReMe Tracker