Gamla nöldrar

16.9.2008

Ótitlað

Nú er búið að breyta öllu hérna inni...glugginn sem ég blogga í er orðinn steingrár. Á maður þá bara að blogga með þunglyndislegu ívafi? Njah..þetta átti að vera gleðiblogg!
Sko Marta mín er nokkuð nærri sannleikanum í síðustu færslu. Ég keyri leigubíl og ég ákvað að taka myndina og nafnið af hinu blogginu til að fá frið. Ég nenni ekki einhverju trúnó dæmi í leigubílnum, allt á sinn stað og stund.
Talandi um það ; Þegar ég var nýr leigubílstjóri (verða 25 ár í mars) þá hékk einn á trúnóinu á öxlinni á mér allan bíltúrinn. Uppúr engu tók hann upp á að æla og beint í klofið á mér. Ég hef oft sagt það og segi það enn, ég setti örugglega persónulegt met í að skella saman lærunum. Rak gæjann út, ók heim og mjakaði mér út enn með samanklemmd lærin. Það er í eina skiptið sem ég hef farið í sturtu í fötunum !
Þetta var heldur ekki það sem ég ætlaði að skrifa um, hvurslags er þetta....

Sko, ég hef farið í kyrrðarstundir áfram og fór sl sunnudagskvöld í gospel messu..alveg ferlega gaman og ekki síst að horfa á öll fermingarbörnin sem voru þarna að stíga sín fyrstu skref inn í fermingarfræðslu vetrarins. Stór hópur flottra krakka og foreldrarnir þrælmontnir af þeim. Sigga systir og Steinar komu með og ég held að þau hafi haft gaman að. Þetta er hluti af vetraráætluninni sem ég setti í gang.
Hinn hlutinn er að vinna með meðvirknina og sálarmeinin sem manni áskotnast þegar maður lifir innan um fíkla - ss Al-Anon starfið. Um það ríkir hinsvegar trúnaður og ég mun ekki skrifa um það nema þá bara til að tilkynna að ég hafi farið. Ég sjálf myndi ekki kæra mig um að bloggað væri um mig í slíkum fundum þannig að trúnaðurinn er eðlilegur fyrir mig,

Hér birtist Björn allt í einu í gær, ekki verið heima í mánuð eða eitthvað. Hann hefur haldið til hjá vini sínum sem býr rétt hjá þar sem Björn vinnur, getað þrammað í vinnuni. Hann er ótrúlega lítið hrifinn af strætó enda er ég hérna á "útboðsleið". Þá er bíllinn mannaður útlendingum sem geta ekkert ráðlagt eða talað, eitthvað óku þeir heldur hratt að áliti Björns í fyrra og hann gafst upp á að nota þessa þjónustu.
Nú man ég ekki meira.

Bless!

Skrifað 16.9.2008 kl. 10:28 af Ég sjálf

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 28
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 74
Gestir í gær: 28
Samtals flettingar: 71708
Samtals gestir: 28520
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 20:26:04
eXTReMe Tracker