Gamla nöldrar

9.9.2008

Ótitlað

Ha ha hér slepp ég við að skrifa fyrirsögn þegar ég nenni því ekki. Bú bú á Moggabloggið
Ég er svo ógeðslega þreytt...svona er að byrja að vinna eftir frí. Maður er svo orkulaus og latur og ónýtur...
Bærinn er fullur af Skotum. Þeir eru algerir snillingar. Þeir eru flottasta stuðningsmannalið í heiminum. Þeir eru afar prúðir og flottir kallar.
Ég var í óheppnisgír í dag, eða sko það gekk eiginlega ekkert upp hjá mér...en samt má ég þakka fyrir..allt greitt og allt í lagi með allt og alla.
Ég veit ekki alveg afhverju ég vil frekar skrifa á þessa síðu, jú ég veit það alveg en vitið þið það ?
Ég var að breyta hinni síðunni, tók myndina af mér burt...nenni ekki að vera public figure í leigubílnum...lenda á trúnó við einhvern í vinnunni, vitiði ..ég meika það ekki. Ég verð að hafa frið í vinnunni og svo er ég til viðtals þar fyrir utan, næst alltaf í mig í emaili og svona.
Nú er ég bæði þreytt og södd..ó boj. Lúxusvandamál !

Skrifað 9.9.2008 kl. 19:50 af Ég sjálf

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 29
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 70
Gestir í gær: 16
Samtals flettingar: 71604
Samtals gestir: 28479
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 22:40:31
eXTReMe Tracker