Gamla nöldrar

4.9.2008

Frábær dagur

Ég skrapp í kyrrðarstund í Laugarneskirkju í hádeginu og það fannst mér frábært. Við sr Bjarni áttum síðan gott spjall í um það bil klukkutíma. Þetta var yndisleg stund.

Ég fór góðan spotta út úr þægindarammanum og vatt mér óhrædd að bláókunnri konu og spurði hvort ég mætti sitja hjá henni. Mér fannst ég bara flottust !!

Ég sat með henni og við borðuðum saman súpu. Ég ætla að fara aftur og njóta þess að fá frið í sálina mína.

Ég gekk talsvert af trúnni þegar ég missti Hilmar. Það vil ég ekki og ég ætla að taka skref til þessa hjálpræðis sem trúin þó alltaf veitir.
Ég ætla að draga úr þessum dagbókarskrifum. Forgangsröðin verður önnur í vetur.

Ég er í fyrsta sæti og nú ætla ég að fá frið -sálarfrið.

Ég gleymi ekki Himma mínum, aldrei ! En ég get ekki dvalið í þessari sorg og vanlíðan, ég þarf að eignast líf. Líf sem er lifandi.

Góða nótt og þakka ykkur öllum fyrir yndisleg skilaboð við næstu færslu.

Skrifað 4.9.2008 kl. 23:57 af Ég sjálf

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 58
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 31
Gestir í gær: 15
Samtals flettingar: 71664
Samtals gestir: 28496
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 16:05:53
eXTReMe Tracker