Gamla nöldrar
26.8.2008
Ónefnd færsla
Ég setti eftirfarandi færslu inn á lokað svæði sem við erum með nokkrar mæður.
Ég ákvað hinsvegar að setja þetta líka hérna -fyrir restina af fólkinu okkar.
°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°
26.8.2008 | 15:58
Ekki gengur það
Hjalti minn er búinn að klúðra samfélagsþjónustunni sinni.
Hann hefur víst verið að sofa yfir sig og ekki mætt - hann hefur fengið einhverja sénsa en nú er það ekki lengur.
Hann segir að kærastan fari alltaf framúr, slökkvi á klukkunni og ætli að leyfa honum að sofa aðeins lengur....sofnar svo sjálf...og hann vaknar ekki.
hvað sem því líður þá hefur hann núna 14 daga andmælarétt...sé ekki fram á að það breyti neinu enda sagði sá sem hann talaði við í fangelsismál, að þetta væri hans ábyrgð. Kærastan hans bæri ekki ábyrgð á þessu.
Æj ég veit ekki hvað ég á að gera. Langar mest að skríða upp í rúm og breiða upp fyrir haus. Koma aldrei framúr aftur.


