Gamla nöldrar

24.8.2008

24 ágúst 2008

Ég er lánsöm í óláninu. Ég man ekki neina sérstaka atburði nema að svo takmörkuðu leyti. Mannshugurinn er snilldargræja, lokar sjálfvirkt á það erfiðasta og það er gott. Minnið hefur truflað mig í gegnum tíðina.
En það er kannski blessun.
Ég man viðhorfið, ég man sársaukann yfir því að vera alltaf fyrir.
Ég flúði til ömmu og þar tók ekki betra við.
*sé til seinna hvort mér tekst að skrifa það hérna inn*

Sem krakki hafði ég aldrei skjól neins nema þá systur minnar.
Skólinn brást ekki við fyrr en ég var komin í Laugalæk, til Þráins skólastjóra, sem ég hef alltaf litið á sem einn minn mesta velgjörðamann. Blessuð sé minning hans.

Lærdómur var aldrei vandamál en framhaldsmenntun kom ekki til greina, bæði var ég löngu orðin fyrir á heimilinu og svo hitt að hafi maður ekki bakhjarla þá nær maður ekki neinum markmiðum.
Stelpurnar mínar hafa báðar verið að læra -Solla tók kvöldskóla og Hjödda er á fullu í sínu námi.

Það er ekkert undarlegt að sambúðir við barnsfeðurna hafi ekki gengið, ef einhver var erfið í umgengni þá var það ég. Ég harðlokaði á alla, engum hleypt inn.
Steinar tekur bara ekki mark á þessum hjúp, hann þykist ekki sjá hann en samt veit hann ekki alveg allt. Hann hefur ákveðnar grunsemdir um hvað t.d. afi gerði en hann vill ekki vita það nákvæmlega, segist verða of reiður.
Honum finnst lífið hafa löngum barið nóg á konu sinni.

Ég finn samt til með systu minni, hún man. Hún man miklu meira en ég enda er hún eldri. Hún sá t.d. meðferðina á mér sem ég man ekki.
Við ræðum þetta stundum.

Við erum báðar særðar eftir uppeldið.

Pabbi sagði einhverntímann ,drýgindalegur, : að við værum svo vel uppaldar!
Það sveið undan því, hann veit ekkert, hann var ekki heima, hann skilur ekki sálarlíf neins....

Skrifað 24.8.2008 kl. 11:25 af Ég sjálf

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 25
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 66
Gestir í gær: 27
Samtals flettingar: 71344
Samtals gestir: 28415
Tölur uppfærðar: 16.3.2010 14:13:55
eXTReMe Tracker